Velkomin(n)

Endilega commentið þegar þið kikið við svo ég sjái hverjir eru að skoða ;)

Sóldís hvolpafull

27. janúar 2010 | geisla

Ég fór í sónar í dag með Sóldísi hún er komin 3,5viku í dag (23daga) hún var komin svo stutt að hvolpurinn var ansi lítill en það sást hjarsláttur en ég á að koma aftur í sónar eftir 7-14daga þá sérst þetta betur.

Ég ætla ekki að vera of spennt strax  sé til hvernig þeta fer en þetta eru alla vega góðar fréttir :)

Ég er búin að skrá Arisi í hlýðni 1 próf 6febrúar hef ekki verið allt of dugleg að æfa en vona að það komi ekki að sök hún ætti alveg að ná þessu prófi.

Ég er núna búin að mæta 3 sunnudaga með Arisi í hundafimi svaka gaman hún er alveg að fíla þetta og er orðin ágætlega klár þarf aðalega að æfa vefið.

Ég er núna komin á þriðju viku í átakinu en ég missti 3kg. á 2 vikum sem ég er nú bara mjög sátt við vona að þetta gangi vel áfram :)

Posted in Óflokkað

8 ummæli

  1. Helga

    Vá frábært, til hamingju með frábæran árangur í prógramminu :D
    Vona svo innilega að allt gangi vel með hana Sóldísi í þetta skiptið.
    Knúsar, Helga

  2. Fjóla

    ohh frábærar fréttir með Sóldísi vonbandi gengur þetta upp hjá henni núna :D . Rosalega gaman að heyra þetta með Arisi elsku dúlluna hún er fædd fyrir hundafimi :D .
    Rosalega stendur þú þig vel í átakinu þetta er alveg frábært hjá þér :D .

    knúsar Fjóla sem saknar þín svo svo svo mikið

  3. geisla

    Já stelpur við VERÐUM að fara að hafa skype fund!

  4. Dagbjört

    Til hamingju með Sóldísi og átakið!!
    Hlakka til að horfa á ykkur í prófinu..þú mætir samt 5 feb er það ekki?:)

  5. geisla

    5 feb í hvað?

  6. Kolla

    Til hamingju með Sóldísi.
    Frábær árangur hjá þér!

  7. Anna

    Vonandi á allt eftir að vera í lagi með Sóldísi skvísu) gaman að heyra að það gengur vel í hundafiminni þetta er svaka gaman þegar hundurinn manns nennir þessu;)hehehe!!
    Til hamingju með að vera búin að ná svona góðum árangri í átakinu;):*
    Kveðja frá Finnlandi
    Anna, Eldur og Harry

  8. Anna Rán, Leó Logi & Erpur.

    Hæhæ, vonandi er allt flott að frétta af Sóldísi. :)

Rita ummæli

Ath.: Sum ummæli birtast ekki strax heldur bíða yfirlestrar fyrir birtingu. Því er óþarfi að senda sömu ummælin inn mörgum sinnum.