Brons próf
Ég skráði Arisi í hlýðni brons próf í gær en fékk svo póst um það áðan að prófið yrði líklegast ekki haldið þar sem aðeins 2 væru skráðir
En ég vona að það verði þá haldið sem fyrst aftur. Þetta var reyndar óundirbúið hjá mér, hef ekkert æft Arisi en ég veit að hún kann þetta allt þarf bara smá upprifjun.
Ég fór í fyrsta tímann í átakinu á mánudaginn. Gekk mjög vel og svakalega mikið af fólki. Fór svo beint eftir fundinn og keypti mér kort í ræktinni. Finnst ótrúlega gott að vera byrjuð aftur. Þetta hefur verið soldið erfitt svona fyrstu daganna eda veit ég ekki alveg hvað má borða og hvað ekki. Alla vega eru öll einföld kolvetni á bannlista eins og kökur, nammi og brauð. En má borða spelt flatkökur og mjög gróf dökk brauð en ég veit ekki alveg hversu mikið. Hún hringir í mig á mrg. og þá get ég aðeins rætt við hana finnst þetta soldið óljóst var mikið þæginlegra í danska þá vissi maður nákvæmlega hvað mátti og hvað ekki.
Posted in Óflokkað
14. janúar 2010 kl. 20.14
Vá þú dugleg að vera byrjuð í átaki.
Ég og Þórdís ætlum að fara í Hress niðrá Völlum, hlakka svo til! Get samt ekki ímyndað mér mig sjálfa spriklandi á einhverju hlaupabretti-en jæja;)
Já ferlega fúlt að prófinu var slúttað, ég sendi Dótlu skilaboð á fésinu og það þurfa minnst 5-6 að vera skráðir, en ég og Lovísa ætluðum að skrá okkur, en það dugar víst ekki:/
Við mætum allar næst, og æfum vel þangað til og rúllum þessu allar upp=)
Já…sé þig eftir smá hehe
15. janúar 2010 kl. 18.53
Já endilega verðum duglegar að æfa. Næsta próf er 6mars reyndar akkurrat þegar Sóldís á að vera að eiga ef hún er hvolpafull
16. janúar 2010 kl. 0.20
fúlt með bronsprófið :S. Þú þarft þá kanski bara að skoða þetta þegar nálgast sumarið þá verður öruglega nóg af fólki sem vill taka prófið ;D
16. janúar 2010 kl. 23.03
Já, ég vona að hún geti haldið í sér á meðan Aris er í prófi hehe
16. janúar 2010 kl. 23.04
já það er alveg spurning, held samt það sé of mikið stress svo þarf ég kannski að fara þetta tekur svo lagan tíma svona próf… er að spá með hlýðni próf sem er í febrúar kannski frekar
17. janúar 2010 kl. 15.06
Leiðinlegt að prófinu hafi verið aflýst en mér lýst samt vel á svona hlýðni próf;)
Ætlaði bara að kvitta hérna, gangi þér vel í átakinu:)
Kveðja frá Finnlandi
Anna
17. janúar 2010 kl. 19.34
Ok, ég var einmitt að velta því fyrir mér hvort það mætti fara í hlýðni 1 þó maður væri ekki búinn með bronzið- mér var sagt það um daginn að þú yrðir að vera búinn með bronzið.
En gott að vita að þess þarf ekki=)