Velkomin(n)

Endilega commentið þegar þið kikið við svo ég sjái hverjir eru að skoða ;)

Námskeið

10. janúar 2010 | geisla

Nú er ég búin að skrá á 3 námskeið.

Ég byrjaði aftur í hundafiminni áðann æðislegt að byrja aftur. Aris er rosalega góð í fiminni en ég þarf aðeins að æfa mig en þetta verður held ég frekar fljótt að koma. Ég keypti mér klippikort með 10 skiptum en það veðrur kannski bara byrjunin þetta er svo gaman sérstaklega þegar maður er með svona áhuga saman hund.

Svo skráði ég mig á clikker námskeið hjá töfralausnum fer með þær báðar á það hlakka rosalega til. Ætti að vera auðvelt að kenna þeim nýja hluti þegar þær eru búnar að læara á clikkerinn. Fyrsti tíminn byrjar á sunnudaginn þá bóklegur í 4klst. en svo verður verklegt 5 sunnudaga eftir það í klukkutíma.

Þriðja námskeiðið er ekki hundanámskeið heldur námskeið fyrir mig það er weight loss challenge þetta er 12.vikna átaksnámskeið með fræðslu um hollt mataræði og hreyfingu. Sú sem er með þetta er einkaþjálfari og hjúkrunarfræðingur og er að selja herbalife líka hún mælti með því að ég færi á það líka og ákvað ég bara að slá til og prófa það. Ella systir og pabbi eru líka í átakinu en spurning hvort að pabbi fari á herbalife.

Ég og Ella ætlum svo að kaupa okkur kort í ræktina svo núna veðrur tekið á því hlakkar mér bara til.

Ég er farin að vinna fullan vinnudag núna 8klst. soldið viðbrigði  að fara úr 6klst. soldið lítið eftir af deginum það er það eina sem ég sakna ekkert mál að vinna svona lengi. En það er bara að vera skipulagður held ég þá reddast þetta.

Sóldís var pöruð 4þjanúar við Tý og fer ég með hana í sónar 27.janúar hlakkar mér mikið til og vona ég svo sannarlega að þessi eina festa dugi til að búa til falleg hvolpakríli. Langar svo mikið að þetta takist í þetta sinn.

Á föstudaginn var Dagbjört vinkona með smá svona stelpuhitting var svaka gaman og mikið spjallað.
Annars er bara gott að frétta alltaf nóg að gera….  Endilega muna að kvitta ætla að láta nokkrar myndir fylgja með

Ég og Bella sem Dagbjört á

Ég og Atlas töffari sem Dagbjört á

Við Dögun í veröldinni okkar

Tara Dúlla, Sóldís og Aris á Rauðavatni

Sóldís er ekki búin að láta Arisi í friði alltaf að greddast í henni

Með Dagbjartar voffa

Dögun krúsímús á aðfangadag í kápunni frá mér :)

Kvitt kvitt ;)

Posted in Óflokkað

3 ummæli

  1. Fjóla

    oh gaman gaman myndir. Elsku Dögun er nú meiri snúllan :D .
    Vonandi gengur þetta upp með Sóldísi og pörunina :D það væri sko ekki leiðinlegt :D

  2. Dagbjört

    Vá þú sagðir mér ekki að þú hefðir parað! Ég krissa alla putta fyrir ykkur:)
    Takk fyrir föstudagskvöldið, var ferlega skemmtilegt.
    Ég fór í matarboð til tengdó í gær svo ég þurfti að beila á hundafiminni- ætla að koma næst, ætla að sjá hvernig Ugla verður.
    Lýst vel á námskeiðin sem þú ert að fara í, þú ert ekkert smá dugleg!
    Heyrumst skvísí!

  3. geisla

    Úff já þið megið sko alveg krossa putta :D
    Heyrumst endilega sem fyrst

Rita ummæli

Ath.: Sum ummæli birtast ekki strax heldur bíða yfirlestrar fyrir birtingu. Því er óþarfi að senda sömu ummælin inn mörgum sinnum.