Pakka dagur
Ég var að koma heim af pakkadegi með vinnunni. Ein úr vinnunni bauð okkur heim til sín. Það er þannig að ein deild sér um veitingar og ég var á þeirri deild í fyrra svo ég þurfti ekki að gera neitt í ár sem er voða þæginlegt
Ein kakan var ansi spes með alveg hrikalegu salt bragði :/ Sú sem gerði hana hafði greinilega ruglast á sykri og salti ég þorði ekki annað en að borða hana og vá þetta var ekki gott… eftir á voru svo allir að tala um þetta og sumar héldu að bragðlaukarnir á þeim væru skemmdir og prófðu aðra köku til að athuga hvort hun væri eins hehe bara fyndið.
Ég gaf hálsmen (blóðstein) á pakkajólunum og sú sem fékk hann var rosa ánægð ég fékk kertastjaka með jólasveini
Ég er búin að vera á svaka flakki í vinnunni. Búin að vera á litlu deildinni í ca.2-3vikur en í dag fór ég á aðra deild sem ég var fyrst á þegar ég byrjaði að vinna á leikskólanum 2005. En ég fæ að fara á mína gömlu deild á mánudaginn hlakkar rosalega til
Á morgun á Dögun krúsímúsin mín afmæli og verður hún 1árs. Ég ætlaði með hana í húsdýragarðinn en hún er búin að vera veik alla vikuna svo hun má ekki fara út svo ég ætla með hana í veröldina okkar (hún er enn svo kvefuð en hætti með hitann í gær). Verður gaman fyrir hana að fá að leika sér þar
Ég fór í göngu á þriðjudaginn í -12°c og það var ansi kalt Aris var frosin á tánum og með frosið slef í andlitinu sem betur fer hefur hlínað og í dag var 2°c hiti
Knús á ykkur sem nennið að lesa :*
Posted in Óflokkað
4. desember 2009 kl. 22.59
Kósi að hafa svona pakkakvöld. En ég sé þig alveg fyrir mér að borða saltkökuna! Vá hvað þetta hefur verið vandræðalegt. Aumingja Aris, hún hefur samt örugglega ekki látið frostið stoppa sig í að ráðast á snjóinn! Ég vona að það verði nú jólasnjór þegar ég kem heim!
Knúsar frá mér og Fróða
5. desember 2009 kl. 0.01
han er búin að vera í alveg öruglega rúmlega viku snjórinn en hann er að fara núna er rigning. En vonanid kemur hann aftur nokkrum dögum fyrir jól
5. desember 2009 kl. 14.01
Ho gaman að hafa pakka jól oh það er svo kósý og notarlegt.
En knúsar á þig. Ég sakna þín og vonandi getum við átt símasamtal saman bráðlega.
Knúsar Fjóla og Moli
5. desember 2009 kl. 20.40
Gaman að hafa pakkadag
Hundarnir mínir neytuðu að labba. Abba og Skjöldur lögðust bara niður hehe.
Kveðja
Kolla og voffar
7. desember 2009 kl. 13.59
Ojj brrr frost!! Ég vona samt að það verði jóla snjór á Íslandi þetta árið;)
Það er svo gaman á svona pakka jólum, en aumingja konan sem gerði saltkökuna hún hefu ekki alveg verið að fylgjast með þegar hún var að baka!! hehehe!!
Kveðja
Anna, Eldur og Harry